Andlega get ég ekki meira, líkamlega ekki heldur.....
Píndi mig frammúr í morgun og fór í Pilates tíma, var klárlega
þreyttasta manneskjan í ræktinni!!!!
Ég sagði í skólanum í gær að ég væri komin í áfengisbann uns
eftir útskrift. Það vakti upp miklar umræður. Það voru ekki allir
sammála því, sumum fannst ég ætti að detta vel í það núna svona í
síðasta sinn áður en ég fer heim.
Reyndar pæling, þar sem mar er að kveðja alla og sér suma aldrei
aftur!!!!
Ég og Allie ætlum samt að halda okkur frá áfenginu og ætlum í bíó
og mat í kvöld.....
Fór í ETS myndatöku í gær. Allir í viðskiptadeildinni taka þetta
próf, það er verið að kanna kunnáttu þína úr grunntímunum býst ég
við... Mér tókst að vera í top 25% og var boðið í myndatöku og
hádegisverð.
Ég mætti of seint, og það var búið að stilla öllum upp í stiganum.
Ég tróð mér inná milli og rétt náði að fá andlitið mitt á myndina,
hehe.
Okkur var boðið svo uppá samlokur, frekar slappt verð ég nú að
segja. Þeir reyndu að gera þetta voða fansí með að láta okkur nota
tangir til að setja ostinn, skinkuna og svona á brauðið.
Svo vorum við kölluð upp og tókum við skírteinum!!!
Afhverju fær mar ekki medalíu eða bikar eins og í
íþróttum.........
Jæja, ætli ég verði ekki að drífa mig uppí skóla að hitta
hagfræði hópinn minn....
Mæli með þessum lögum
Come around - Collie Buddz
Umbrella - Rihanna
Way I are - Timbaland (Tryggvi, þökk sé þér er þetta á
repeat)
Back to black - Amy Winehouse
Og
Vivrant thing - Q-tip útaf því að það kemur mér alltaf í stuð í
gymminu....