Ellen í Myrtle Beach, SC
Coastal krakkar
13.04.2007 16:24:38 / ellmber

Næstum útskrifuð

Andlega get ég ekki meira, líkamlega ekki heldur.....

Píndi mig frammúr í morgun og fór í Pilates tíma, var klárlega þreyttasta manneskjan í ræktinni!!!!

Ég sagði í skólanum í gær að ég væri komin í áfengisbann uns eftir útskrift. Það vakti upp miklar umræður. Það voru ekki allir sammála því, sumum fannst ég ætti að detta vel í það núna svona í síðasta sinn áður en ég fer heim.
Reyndar pæling, þar sem mar er að kveðja alla og sér suma aldrei aftur!!!!
Ég og Allie ætlum samt að halda okkur frá áfenginu og ætlum í bíó og mat í kvöld.....

Fór í ETS myndatöku í gær. Allir í viðskiptadeildinni taka þetta próf, það er verið að kanna kunnáttu þína úr grunntímunum býst ég við... Mér tókst að vera í top 25% og var boðið í myndatöku og hádegisverð.
Ég mætti of seint, og það var búið að stilla öllum upp í stiganum. Ég tróð mér inná milli og rétt náði að fá andlitið mitt á myndina, hehe.
Okkur var boðið svo uppá samlokur, frekar slappt verð ég nú að segja. Þeir reyndu að gera þetta voða fansí með að láta okkur nota tangir til að setja ostinn, skinkuna og svona á brauðið.
Svo vorum við kölluð upp og tókum við skírteinum!!!
Afhverju fær mar ekki medalíu eða bikar eins og í íþróttum......... 

Jæja, ætli ég verði ekki að drífa mig uppí skóla að hitta hagfræði hópinn minn....

Mæli með þessum lögum

Come around - Collie Buddz

Umbrella - Rihanna

Way I are - Timbaland (Tryggvi, þökk sé þér er þetta á repeat)

Back to black - Amy Winehouse

Og

Vivrant thing - Q-tip útaf því að það kemur mér alltaf í stuð í gymminu.... 


Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.